Súkkulaði .... já takk! En það er ekki sama hvaða gerð skal ég segja ykkur! Godiva súkkulaðið er konunglegt súkkulaði og er bakað saman handa kónginum í Belgíu. Er ekki annars kóngur þar? Og það verða að vera trufflur....mér finnst þær trufflaðar;)
á jólabloggið mitt!!! Hér ætla ég að setja inn allt sem mig langar í í jólagjöf, hvort sem það er skynsamlega undir velsæmismörkum í verði eða bara rugl dýrt. Þá er það bara ég að láta mig dreyma um gull og græna skóga.