Sunday, December 13, 2009

Töfrasproti

Við höfum saknað mikið gamla Braun töfrasprotans okkar sem við bræddum úr.

Nokkrir hlutir sem að Jóla Þór gæti hugsað sér að eiga ...



Trefil kæmi sér vel svo að manni verði ekki kalt í vetrarkuldanum á Íslandi!




















Gamla snyrtitaskan er orðin slitin og kæmi sér vel að eignast nýja.

Monday, December 07, 2009

Hátalarar fyrir ipoddana



Okkur langar í góða ipod docking station með hátölurum.

Kjötfat fyrir framtíðarkræsingar


Við eigum bara eldföst mót og salatskálar og ekkert fat. Það væri gaman að fá eitt slíkt.

nú á þetta að koma

Tuesday, December 01, 2009

Dan Brown klikkar ekki



Mig langar í ensku útgáfuna í jólagjöf af því að þá get ég fengið hana í kilju, mikið auðveldara að lesa í rúminu ;)

Tilvalin gjöf


Ég væri sko alveg til í svona gjafabréf í pakkann minn !!

Nú getur fjölskyldan sett inn sínar jólaóskir

Já ég er búin að bjóða Þór, Mumma, Ölmu, mömmu og pabba að blogga um það hvað þau langi í jólagjöf, nú er bara að sjá hver mun setja inn eitthvað skemmtilegt.

Tuesday, November 10, 2009

Forréttar/desert hnífar úr Ikea



Ég og Þór eigum hnífapör úr Ikea í eldhúsinu en við eigum ekki þessa hnífa.

Þeir kosta 895 í Ikea, hagstætt huhh?

Nýtt sléttujárn



Remington Shine Therapy sléttujárn til að gera mig glæsilega ;)

Fæst held ég í Byggt & Búið

Hægt að lesa nánar um það hér

Gullpenninn góði, vantar svollis



Held að hann fáist í öllum helstu snyrtivörubúðum og örugglega í Hagkaup.

JÓL 2009

Já nú datt mér í hug að blogga um jólagjafir aftur. Ég hef ekki kíkt inn á þetta blogg í uþb 2 ár þannig að það var soldið áhugavert að sjá hvað mig langaði í 2006. Skjáinn er ég búin að eignast, AeroGarden er ég búin að eignast og meira að segja á ég núna stóran Síma slopp sem pabbi gaf mér..súper dúper.

En já, ég ætla að blogga um allt sem mig langar í í jólagjöf hvort sem það er dýrt, ódýrt eða passlegt. Ókey bless:)

Sunday, November 19, 2006

Kósý gjöf



Mmmmmm alveg eins og ég vil hafa það....mjög síður og með hettu.


Fæst í Bathrobe búðinni

Thursday, November 16, 2006

Já ég veit...

Apple Cinema Display
...kannski "AÐEINS" of dýr gjöf. En eru ekki einhverjir millar þarna úti sem vilja endilega gefa mér jólagjöf...anyone?

slurp slurp

Godiva Trufflur

Súkkulaði .... já takk!
En það er ekki sama hvaða gerð skal ég segja ykkur! Godiva súkkulaðið er konunglegt súkkulaði og er bakað saman handa kónginum í Belgíu. Er ekki annars kóngur þar? Og það verða að vera trufflur....mér finnst þær trufflaðar;)

Kálræktun í eldhúsinu mínu...ójáá

Aerogarden

Þetta finnst mér geysilega sniðugt og það er víst næstum ódrepandi það sem maður ræktar í þessu stöffi. Góð....en dýr jólagjöf þetta:)

Thursday, October 26, 2006

Velkomin

á jólabloggið mitt!!!
Hér ætla ég að setja inn allt sem mig langar í í jólagjöf, hvort sem það er skynsamlega undir velsæmismörkum í verði eða bara rugl dýrt. Þá er það bara ég að láta mig dreyma um gull og græna skóga.